Íbúðakaupin..

 

Ég er enn að leita að fleiri myndum til að setja hingað inn og ættu þær að skila sér um eða eftir helgi vonandi. (Fæ smá utanaðkomandi aðstoð við leitina).

Annars erum við Gunnsteinn alveg að verða búin að fá nóg af íbúðaleitinni - búin að skoða heljarins helling af íbúðum, bæði í byggingu og eldri, og höfum alveg fundið eitthvað sem höfðar til okkar en samt ekki THE ONE ennþá. Ég fæ líka svona pang í magann af og til, æskuvinkonurnar og fjölskyldan mín megin er öll í Kefló. Brósi var að fá lóð í Keló og allt svoleiðis á meðan ég er að skoða blokkaríbúð í Reykjavík á sama prís og heilt hús í Kef.  Kannski flytjum við bara til Keflavíkur þegar börnin verða orðin fleiri?  Hver veit?

Við erum nú ekki í neinum spreng með að finna íbúð, búin að selja ofan af okkur svo við erum að flytja inn á foreldra okkar hvort eð er og þá held ég að einn eða tveir mánuðir til eða frá skipti engu máli.

Gunnhildur glaðlynda.


Myndir að smella inn

Var að bæta inn örfáum myndum sem ég fann...
Ekki örvænta, það koma fleiri um leið og ég finn þær ;)


Helgar ofátið

Við átum yfir okkur um helgina og merkilegast er samt að við elduðum bara á föstudaginn ;)
Það voru tvenn barnaafmæli og svo var okkur boðið í mat í gærkvöldi þannig að þetta var bara eitt allsherjar átfestival má eiginlega segja.

Gunnsteinn stengdi þess heit að fara aldrei aftur með mér í barnaafmæli - hann hefði verið eini pabbinn á staðnum (fyrir utan pabba afmælisbarnsins) og hann hefði misst af 2 fótboltaleikjum...

Við ákváðum að leyfa Júlíu Líf að lúra í Keflavík aðfaranótt sunnudags of nýttum færitækið og smelltum okkur á Síam að borða og svo á vídjóleigu. Merkilegt hvað það er eitthvað öðruvísi að vera bara 2 ein heima Ullandi 

Gunnsteinn er að byrja í bc í dag og ég svo á morgun. Ég átti greinilega að fara erfiðari leiðina að námskeiðinu þar sem hann fékk sendan tölvupóst um hvað ætti að taka með sér og ýmsar leiðbeiningar um hitt og þetta. Ég sendi svo e-mail á liðið og spurði hvað ég ætti að taka með mér annað en skó og föt og fékk svarið - vatn og góða skapið (eða eitthvað á þá leið)... Það skiptir samt engu máli - ég er komin með upplýsingarnar sem hann fékk ;)

Íhaaaaa..
Gunnhildur


Blogg

Sorry - blogg hefur ekki alveg verið efst á listanum upp á síðkastið þar sem allt annað hefur átt forgang en núna verður því breytt.

Við Gunnsteinn skruppum til Brussel um þarsíðustu helgi. Ferðin var fín og Brussel var nokkuð flott. Reyndar sáum við ekki allt það merkilegasta en sáum nú fullt samt sem áður - kannski förum við einhverntímann aftur og tökum túristapakkann þá en Brussel er nú samt sem áður ekki staður sem maður vill eyða sumarfríinu sínu á heldur meiri svona.. vinnuferðastaður. Hins vegar var súkkulaðið alveg to die for  - í dag finnst mér Nói Síríus bara vera frat.

Ég lærði helling á flugvellinum í París, t.d. að þegar maður tékkar sig inn (hjá Flugleiðum n.b.) þá þarf að taka það sérstaklega fram að þú viljir sitja við hlið maka þíns.  Ég hafði áður haldið að það væri bara nokkuð automatiskt en við fórum upp að innritunarborðinu saman og létum starfsmanninn fá báða miðana í einu en komumst svo að því að við sátum s.s. í sitthvorri röðinni, en þó bæði í gluggasætum. Mjög sérstakt ;)   Þessu var samt bara reddað um leið og við settumst í vélina.

Einkabarnið er líka byrjuð á leikskóla og líkar það svona agalega vel. Hún er alveg sátt við að fara þangað og vill helst ekki fara heim (sem er mjög gott þó að hjörtu foreldranna finni smá sting).

Jæja, vinna smá og svo blogga ég meira.

Kv.
Gunnhildur


Glætan spætan


Mánudagur farinn og þriðjudagur að verða hálfnaður.. hvar endar þetta allt?
Ég er orðin grasekkja núna í nokkra daga og ætla að njóta ökuþjónustu væntanlegrar tengdamóður minnar þangað til Gunnsteinn minn kemur aftur.   Verð að muna að hringja í hana strax eftir hádegið og biðja hana um að sækja mig og svo dótturina og hendast svo með okkur heim svo ég komist út í búð og geti eldað eitthvað gott fyrir okkur mæðgurnar eða jafnvel fyrir okkur þrjár saman, hver veit? - það er sko yndislegt að eiga hana Kiddý mína að.

Heimilið er að verða fínt eftir athafnirnar við vaskinn inni á baði og stendur til að skúra gólfið þar og smella svo öllu sem var undir vaskinum aftur þangað.  Þetta var svo miklu minna mál að laga heldur en ég hélt.

Gunnsteinn gerðist gröfukall um helgina úti á blettinum hjá pabba og naut þess að moka mold og færa snúrustaura en á meðan fór ég í barnaafmæli og hitti vinkonurnar. Stoppaði auðvitað allt of lengi og át næstum á mig gat þar.. fór svo til mömmu og pabba í hangikjet.. nammi namm.

hmm.. það hefur svo mikið verið að gerast eitthvað og samt ekki neitt.
g.


Allt að gerast

Já gott fólk, það er hreinlega allt að gerast um þessar mundir.
Fastráðning, skólinn að byrja, Júlía Líf að verða leikskólabarn, Gunnsteinn að íhuga námskeið fyrir sjálfan sig, veiðiferð fyrir hann og útlandaferð fyrir okkur turtildúfurnar - reyndar vinnuferð en hvað með það...  Þetta er það sem stendur okkur fyrir dyrum á næstunni.

Svo má nú varla gleyma að minnast á að það að það eru allskonar hugmyndir að gerjast, samningaviðræður í gangi um allt og ekki neitt og að ég ætla að baka pizzu á föstudag.

Dugnaðurinn hefur ekki alveg náð tökum á mér enn, þrátt fyrir heiðarlega tilraun í gær þar sem ég þreifa allar rimlagardínurnar heima (Skil ekki af hverju þær safna svona geðveikislega miklu ryki). Svo gaf ég nú bara upp öndina og fór að sofa um 22... Skemmtilegt...

Gunnhildur geðgóða


Belön

Eftir erilsaman föstudag þar sem ég fór á Chippendales og Gunnsteinn í paintball, út að borða og svo út á lífið ákvað ég að láta Gunnstein sofa aðeins lengur á laugardagsmorguninn. Ég var til í slaginn fyrir kl. 10 en hann svaf aðeins áfram.  Við sóttum Júlíu Líf, fórum niður í bæ, svo í barnaafmæli til Rúnu Bjargar í Keflavík og þaðan beint í bæinn aftur því við ætluðum ekki að missa af menningarnóttinni.

Við spókuðum okkur um eins og hefðarfjölskylda í miðbænum með barnavagn og hittum slatta af fólki. Eftir flugeldasýninguna fórum við þó heim því við vorum eiginlega bara búin á því síðan daginn áður.

Annars er lítið að frétta nema að ég er að gera Gunnstein bilaðan..  ;)

Gunnhildur


Hvað gerði ég ekki í gær?

Ég byrjaði nú "eftir vinnu daginn" á því að sækja Júlíu mína til dagmömmunnar og fara svo í CloverSpring til að kaupa mat og smá skoðunarferð um verslanirnar þar, ákvað svo í huganum að versla mér ekkert þar í þetta sinn þar sem ég er alveg næstum farin til útlanda. Við Júlía Líf sóttum svo unnusta minn heittelskaðan í vinnuna og fórum heim.

Maturinn sem ég keypti situr enn óeldaður inni í ísskáp því við nenntum engu í gær og pöntuðum pítsu. Svekkelsið, yfir því að vaskurinn skuli enn vera að valda okkur smávægilegum vandræðum, var alveg yfirþyrmandi svo ég ákvað að lakka baðið.. Fannst það frábær hugmynd og var voðalega stolt af sjálfri mér alveg þangað til mig langaði í bað aðeins seinna um kvöldið.

Gunnhildur - sigurvegari í genapollinum-


Dugnaðurinn að drepa okkur

Það er alveg satt, já alveg dagsattt.. alveg örugglega satt.

Við höfum eignast okkar fyrstu gæludýr!! 2 gullfiska í glerskál. Rosalega flottir ;)  
Eftir að hafa hlegið að því í dálitla stund að við eigum íbúð, bíl og barn að við séum núna fyrst að eignast gæludýr þá allt í einu uppgötvaði ég að við þurfum að gera eitthvað við fiskana ef við skreppum til útlanda - fær maður fólk til að passa fiskana sína eða fer maður bara með þá í pössun...

Annars er heill hellingur að frétta af okkur. Við erum búin að fá magapest. Gunnsteinn er að verða útlærður í pípulögnum vaska (s.s. vatnslásnum) - Ekki spyrja af hverju en hann var ekkert æðislega thrilled þegar ég vakti hann og sagði að vaskurinn væri stíflaður.   Ég þykist ætla að mála baðið og Júlía Líf á jeppa. Já, og við máluðum einn vegginn í svefnherberginu okkar bláan - kannski ekki eins rómantískt og ég lagði upp með þegar ég heimtaði að við myndum mála vegginn en gefum þessu smá tíma, ef við málum hann skyndilega aftur þá hefur hann ekki haft góð amors áhrif á okkur ;)  híhíhí.  En við eigum nú enn eftir að klára vegginn því það vantar á hann texta sem við viljum hafa.

Ömm... hvað annað..   Já, við Gunnsteinn erum ýmislegt að plana sem kemur í ljós síðar (nei, við ætlum ekki að fara að skipta um bíl - erum á nýjum bíl.. ekki nema við viljum jeppa.. )

Best að sinna vinnunni aðeins.
Meira síðar.

Berghildur Bloggóða

 


Verslunarmannahelgin

Jæja þá fer að líða að verslunarmannahelginni. Það er nú einu sinni þannig að flest allir landsmenn (þá kannski helst yngri kynslóðirnar) eru varla búnir að pakka tjaldinu þegar biðin eftir næstu verslunarmannahelgi hefst. Ég skal nú alveg viðurkenna það að ég hef beðið eftir þessari helgi með töluverðri eftirvæntingu. Hins vegar er ég alveg 100% viss um að það sé ekki af sömu ástæðu og flestir aðrir. Ég get nefnilega ekki beðið eftir að fá þriggja daga helgi Hlæjandi

Við, familían, ætlum bara að vera í afslöppun þessa verslunarmannahelgina. Við ætlum að kíkja í sumarbústaðinn hjá foreldrum mínum (Gunnsteins) og svo gæti nú alveg verið að maður kíki til Kefló á hitt settið. En þetta verður allt saman gert í hinni mestu ró og allt annað sem verður gert mun bara verða auka bónus fyrir helgina Glottandi

Ég vona að allir þarna úti skemmti sér alveg konunglega um helgina, hvort sem farið verður á Þjóðhátið í Eyjum, Galtalæk, Akureyri eða hvað sem verður gert.

Kveðja,
Gunnsteinn


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband